NMU gellurnar!

30.06.2007 23:14:54 / thorabjorg

jæja langt um liðið!

Jæja fannst endilega vera kominn tími á eins og eitt blogg og vil byrja það með því að óska nýstúdentunum til hamingju með áfangann! Æðislegt hjá ykkur stúlkur mínar :*

Hef samt ekkert mikið að segja en ætla að sjá hvað kemur þegar ég byrja, vara því við hugsanlega leiðinlegu bloggi :)

Mánuður síðan ég byrjaði að vinna, sem er eiginlega ótrúlegt því mér finnst ég vera rétt byrjuð, vinnan þetta sumarið er mjög skemmtileg, erum 5 sumarkrakkarnir að vinna sem þið ættuð allar að þekkja :) Hilmar, Berglind, Stefán (bróðir) og Erla Dürr (sem reyndar verður ekki með okkur á vakt fyrr en um miðja júlí) þannig að það er alltaf fjör hjá mér. Hitti Erlu nokkuð oft og svo auðvitað hana Evu á bikar, mikið fjör þá :)

Í augnablikinu svíður mér mjög í andlitið og hendur, já mér tókst sko að brenna, það er meira segja til myndir af því en ég tel það ekki ráðlagt að sýna nokkrum manni það, en ég ætlaði sko að tana og sat úti frá 8 með smá pásum og þangað til sólin fór og ég var eins og epli í framan og er með bóndabrúnku, ekki ýkja smart!

En núna eru liðin ár og öld síðan ég heyrði í tilvonandi lækninum mínum! Hvar ertu Sigrún mín? Hvað ertu að gera í sumar? Hvenær fæ ég að hitta þig næst?

Er mikið í því þessa dagana að skoða myndbönd á youtube og mig ætla biðja ykkur um að skoða nokkur mjög góð sem þið gætuð reyndar verið löngu búin að sjá :)

Kick ask - http://youtube.com/watch?v=x9ZZJk06y1w
Fyndin börn - http://youtube.com/watch?v=zMqLVmCQLi8
Enn fyndnari börn - http://youtube.com/watch?v=055ZA5kGfAs&mode=related&search=
4burar að hlægja - http://youtube.com/watch?v=mDQMfbJ1Y-c&mode=related&search=
Hugulsamur stóri bróðir - http://youtube.com/watch?v=i9WmKre5O2I&mode=related&search=
Conney talbot úr britains got talent - http://youtube.com/watch?v=En0A8KGMgq8
Paul potts sigurvegarinn úr britains got talent - http://youtube.com/watch?v=i0dzZTPWrSM
Endalaus fyndinn hlátur - http://www.youtube.com/watch?v=Z4Y4keqTV6w

Elska þessi myndbönd, horfi á þau aftur og aftur :)

En hvað segiði um eins og eina sumarbústaðaferð í haust? þá verður ekkert vesen með staðsetningu - kannski vesen með lækninn okkar því þetta byrjar víst allt saman með skelli, en eins og ein nótt ætti ekki að saka :)

hef þetta ekki lengra að sinni - vona að þið lesið og vona enn meira að þið commentið þá hef ég einhvað að gera þegar ég er í tölvunni :)

~Þóra~

 ********************

fann þessa mynd af lækninum á netinu - á einkar vel við hana þar sem sundlaugin speglast í gleraugunum


» 3 hafa sagt sína skoðun

16.05.2007 00:26:58 / evahannesdottir

End of an era

Hæ hæ elskurnar! Í dag var merkisdagur, að öllum líkindum endaði ég skólagöngu mína í Kvennaskólanum í Reykjavík. Þetta voru æðisleg 4 ár og ég trúi því ekki að þessu sé að ljúka!

Hér er þessi undurfagra bygging! (Fann ekki stærri mynd) Sko þetta var ótrúlegt! Ég sat í skólastofunni að ljúka við síðasta prófið, sálfræði and it just hit me, ég mun aldrei aftur mæta í tíma hérna, taka próf, halda fyrirlestur, hitta allt fólkið og svona gæti eg haldið áfram lengi það til ég brest í grát! :$ En í stað þess að leggjast í grúfu og grenja þá setti ég síðasta punktinn á eftir síðustu setningunni í ritgerðarspurningunni og gekk út með höfuð hátt. Þessu er þá lokið og eg vona svo innilega að eftir þessa dramatísku færslu að eg hafi náð EFN 313, annað væri nú bara kjánalegt, ekki satt?

 

Langaði bara að koma þessu frá mér en endilega höldum áfram að ræða bomsíbomm og þannig...annars sýnist mér það bara vera ég og þú Þóra sem höfum áhuga á því. Hinar enn í menntaskóla sjáðu til :haha: heheh litlu börnin....múhahahah

 

Nú munu næstu dagar hjá mér munu fara í algjört afslappelsi eða þangað til eg byrja að vinna i næstu viku...íííhaa!!

 

bæbæ beibíkeiks 

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

19.04.2007 15:57:53 / thorabjorg

Til hamingju með daginn Erla!

 Hún á afmæli í dag, hún á afmæli í dag, hún á afmæli hún Erla, hún á afmæli í dag

Til hamingju með daginn Erla okkar!
Njóttu þess að vera bara 19 og á tvítugsaldrinum, við erum allar að skríða á þrítugsaldurinn!

 

 Erla hin fagra!

 

 

 

 En hvað segið? eigum við ekki að reyna vera aðeins duglegri hérna á síðunni! Ég heyri nánast ekkert í henni Erlu minni og Sigrúnu minni! Heyri aðeins meira í henni Eva þar sem við erum báðar vel kunnar forritinu MSN!

Hvenær getum við hisst næst? Hvenær flyturu í bæinn Sigrún? og hvar verðuru að vinna í sumar?


Erla, hvað ætlaru að gera í sumar? vinna einhvað? ég hlít að sjá þig einhvað í sumar þar sem ég verð að vinna í sundlauginni, vúei!

~Þóra aka lélegi bloggarinn~ 


» 20 hafa sagt sína skoðun

18.03.2007 14:12:21 / sigrunben

Vonda, vonda veður!

Jæja elskurnar!

Ótrúlega var gaman að hitta ykkur allar núna um helgina - ekki oft sem við 4 erum í sömu byggingunni á sama tíma! Mér fannst ömurlegt að geta ekki "gert eitthvað saman" í gær en ég þurfti nauðsynlega að bera eitt stykki rúm upp á 4 hæð i blokk 8|. En ég er allavega komin með rúm í Reykjavíkinni núnað sem er allt liður í undirbúningi að búferlaflutningum næsta haust...
...veit ekki alveg hvað mér finnst um það að vera að flytja til Reykjavíkur :S! Á eftir að sakna þess all svakalega að vera ekki hérna á Akureyrinni... en "Den tid den sorg!" eins og danskurinn segir.
Ég á nú líka eftir nokkra mánuði hérna heima!

En já, ég var að koma úr flugi frá Reykjavík - það var ekki ánægjulegt flug enda veðrið ÖMURLEGT hérna þessa stundina. Búið að loka nálægasta fjallveginum og frábærlegheit! Ég sem hef nú alltaf haldið því fram að það sé svo gott veður hérna fyrir norðan heiðar... talandi um heiðar, þá er Holtavörðuheiðin lokuð núna líka! Eðal, eðal, eðal veðurfar!

Ég er að hugsa um að fara að horfa á góða veðrið í Austurríki á tímum seinni heimsstyrjaldarinnar - eða Sound of Music - á meðan ég drekk undanrennu og borða klessukökur úr Björnsbakaríi, Rkv...


» 1 hafa sagt sína skoðun

28.02.2007 00:12:12 / evahannesdottir

hey beibí hey beibí HEY!!

Hæ hó...langaði bara að koma með allavega eina færslu áður en hún Erla kemur með eina slíka....ætli við getum ekki búist við henni svona þegar það tekur að vora...hmm.. En ég er með eina magnaða síðu handa ykkur...það er hægt að sjá hvar síminn mans er, hvar sem er í heiminum...ekkert smá geggjað töff....tékk it!!

 

www.phonetrace.org

 

Herrðu þóra elsku besta...ég er í tómu tjóni að skrifa ritgerð eins og er, á að skila eftir viku og ég þarf svo sannarlega að halda vel á spöðunum annars fell ég í þessum áfanga og bara næ ekki að útkrifast og allt ónýtt. Mér fannst nebbla svo sniðugt að velja mér svona rigerðaráfanga þar sem eg hata svo heitt að skrifa ritgerðir, þannig að eg ætlaði bara að læra það í eitt skipti f. öll eeeeen ekki er aftur snúið að þessu sinni....og ég verð í bandi beibí...eða er þá aftur orðið brjálað að gera hjá þér???

 

ja minnsta mál sigrún...lattu svo vita þegar þú kemur í bæinn einhvern tima

 

bless í bili!

kv. diva


» 2 hafa sagt sína skoðun

12.02.2007 23:14:59 / evahannesdottir

Nei hættið nú!

Já, halló....mig langaði aðeins að segja ykkur hvern ég sá og við hvern ég talaði í sundi áðan...Maðurinn er frá Bretlandi og er leikari...hann er hérna í vikufríi með börnum sínum þremur en aðeins 2 þeirra voru í sundi með honum. Hann hefur leikið í mörgum myndum eins og: tha aviator, enemy at the gates, alfie, cold mountain svo er það mín uppáhalds sem kom út f. jólin og heitir Holiday. Eruði kannski búnar að fatta hver þetta er? Hann var (held þau seu hætt saman) að deita Siennu Miller....Þetta er hann Jude Law..

 

I´m in the clouds af kátínu sko!

 

ekki reyna að segja mér að þið séuð ekki öfundsjúkar!!!

 

(ég bíst við kommentum sona eftir 2 vikur eða svo...heheh enginn að skoða þessa síðu lengur)

kv. Eva :haha:


» 4 hafa sagt sína skoðun

18.12.2006 01:11:44 / thorabjorg

Sigrún Mín

Hvað er að frétta af nýja vini þínum, klósettinu?

Kv. fallistinn:(

» 10 hafa sagt sína skoðun

03.12.2006 22:07:13 / evahannesdottir

Gaman gaman!

Hæ hæ !

langaði bara að koma því á framfæri að ég á AFMÆLI Í DAG og ég er orðin 18 ára og 12 mánaða :D

Mikið rosalega er gaman að eiga afmæli og ég er búin að fá ótrúlega flottar gjafir:

  • Gullfiska tvo í SpongeBob búri
  • Ótrúlega flott albúm með myndum frá Mallorca í sumar, allir tanaðir og sætir
  • pening
  • náttföt
  • nærföt
  • meiri pening
  • húfu og vettlinga

AAaahh og svo tekur bara próflesturinn við, jibbí kóla!!

heyrumst síðar fýsur

kv. Eva afmælisbarn :haha:


» 5 hafa sagt sína skoðun

27.10.2006 15:28:32 / thorabjorg

Góðar minningar


 
Fann þessa mynd á síðunni hjá pabba hennar sigrúnar :D bensi.is hef aldrei séð hana en ógeðslega góð mynd..það er svo gaman hjá okkur!

Rifjar augljóslega upp margar góðar minningar þegar ég var lítil saklaus í grunnskóla að æfa sund með öllum vinunum..gat ekki beðið eftir því að fara á sundmót til að hitta alla!
Núna er ég aftur á móti stór ekki jafn saklaus og í háskóla..hætt í sundi og sama má segja um flest alla vinina, ef maður fer á sundmót þá er maður heppinn að hitta einhvern eldri en maður sjálfur sem er enn að æfa!

En við verðum nú að passa bara uppá að halda sambandi og halda kannski svona hitting næsta sumar..og þar verða bara flestir á okkar aldrei sem voru að æfa..það væri gaman!

Sjáumt til..hlakka til að hitta ykkur næst ljúflingar :*

~Þóra~ 

» 7 hafa sagt sína skoðun

06.10.2006 12:27:14 / thorabjorg

Hittingur

Jæja næsti hittingur hvenær? Nú verðum við bara að fara að ákveða þetta! Annars er nóg að gera hjá mér..er búin í einu lokaprófi og næsta er á mánudaginn og þá byrjar anatomyan sem á víst að vera dauði og ekkert líf (væntanlega)! Obbosí..gaman að sjá hvernig ég kem útúr þessu..hvort ég verði orðinn kleppsbúi eða hvað!

Já næstu hittingur? Allar að commenta og segja hvenær það hentar þeim best..sérstaklega þú Sigurún þar sem þú ert nú kannski ekki allar helgar í rvk :)

Hlakka til að hitta ykkur :D

~Þóra~

» 8 hafa sagt sína skoðun

24.09.2006 22:01:57 / sigrunben

Sigrún mætt!

Já, elskurnar mínar - long time no hear, longer time no seen!

Afsakið hvað það er langt síðan ég skrifaði síðast!
Ég er allavega á lífi eftir stórglæsilega útskriftarferð, þar sem djammið sat á hakanum fyrir hlaupum - flesta daga ;)

Ég er annars einstaklega hress enda nýbúin að BUSA litlubörnin sem voru að byrja í MA 8) Ekki var ég svona lítil þegar ég byrjaði - og vá hvað böðlarnir mínir voru mikið eldri og fullorðinslegri en ég er núna!
Vá hvað maður þarf að taka sig til og sætta sig við þá staðreynd að maður er bara einfaldlega að verða gamall!

Ætla ekki að skrifa meira - held ég verði að fara að sofa einsog eldra fólki sæmir!

Annars þá held ég að sé orðið tímabært að hittast!


» 2 hafa sagt sína skoðun

18.09.2006 22:42:38 / thorabjorg

Það er ekki góðs viti...

...að vera búin að gleyma lykilorðinu inná síðuna :S En eftir þó nokkrar tilraunir tókst mér það :D En víst Eva biður um virkni..hvað fær hún þá? :)

Það er alveg margt búið að vera í gangi hjá mér núna síðustu hva...get ég ekki sagt mánuði? það er svo langt síðan við létum heyra í hvor annarri :) En já sjúkraþjálfunin gengur...skulum ekki segja meira...ég er einmitt núna á kafi í bóknum að reyna að fikra mig í gegnum þetta sem gengur svona lala...ég vona bara svo mikið að ég komist í gegnum þetta fyrsta ár..því ég fór um daginn í "starfskynningu" eða við fórum á stofu að fylgjast með sjúkraþjálfurum vinna! Þar sá ég augljóslega að þetta hentaði mér mjög svo vel og ég sá mig alveg fyrir í þessu starfi :D vona að fólk vilji koma til mín..annars er lítil not í mér :)

Ótúlegt en satt þá er djammið búið að vera þó nokkuð eftir að ég byrjaði í skólanummm...sleppti reyndar síðustu helgi en hinar 3 voru djamm helgar og næstu 2 verða það líklega...sko nóg að gera hjá mér :D Busunin var síðustu helgi...hefði kannski mátt sleppa svona eins og einum bjór eða svo...en ég lifið og það er fyrir mestu :) reyndar kom heill dagur í þynnku daginn eftir sem var ekki nógu jákvætt en ég skemmti mér þó vel daginn áður getið séð nánar um busunina á b.c.is/hijo_de_puta og held það sé 2. færslan allavega eins og staðan er núna:) en þetta var allt mjög gaman :)

Já, stelpur mínar..það mun ekki vera bros á ykkar vörum þegar þið sjáið mig næst :) Ég er ekki búin að vera að passa neitt svakalega uppá matarræðið og hvað þá hreyfa mig..er enn að jafna mig eftir sundárin hehe :) en ég hlít að fá kast einhvern tímann þegar ég stend fyrir framan spegil og átta mig hvað ég er búin að gera líkamanum mínum...en ég bíð bara þangað til það gerist :) eða ekki? Allar mínar "megrunir" hafa fokið útí buskan núna nýlega! er að spá að ná bara þeirri þyngd sem ég get farið í fitusog og skellt mér í eitt svoleiðis...nei, þetta var ljótt að segja! Fitusog er bara fyrir fólk sem er í alvöru í vanda stödd og geta ekki bjargað sér sjálft..vona ég geti það! nei höfum þetta frekar svon ÉG GET ÞAÐ! :) ég er bara að tala útí bláinn núna

Úf! Hef ég um einhvað fleira að skrifa? ekkert sem mér dettur í hug! En jáh færslu frá ykkur öllum takk :D

Kveð að sinni!
~Þóra~

» 4 hafa sagt sína skoðun

18.09.2006 21:03:28 / evahannesdottir

Er til of mikils ætlast?


                                            JÆÆÆÆÆÆÆJAAAAAA!!!!!!!!!!!!!!!!

Stelpur mínar! Hvað segiði nú gott?? ekki kominn tími á blogg eða?? Kannski maður fái að heyra frá Sigrúnu hvernig var í Búlgaríu8) og Erlu sona bara til að heyra einhvern tíman í henni :$og auðvitað hversu vel gengur hjá henni Þóru í sjúkraþjálfuninni;)...?? er bara varpa fram smá spörningu..eða er of til mikils ætlast??? Annars er lítið annað en kvennó, kæró sundó, læró og annað sem endar á ó sem kemst að hjá mér þessa dagana...en þið kannski bara látið í ykkur heyra vona ég!!

kv. Eva:haha:


» 1 hafa sagt sína skoðun

24.08.2006 12:02:02 / evahannesdottir

VEI VEI VEI!!!

TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ ÞÓRA MÍN!!! VONANDI ERTU BUIN AÐ HAFA ÞAÐ GOTT Í DAG!!!

SORRY ER EKKI MEÐ NUMERIÐ ÞITT...MANNSTU SIMANUM STOLIÐ...ANNARS HEFÐI EG SENT ÞÉR SMS EN VONA ÞETTA DUGI...

VERÐ AÐ FARA Í TÍMA...LOVJÚ BEIB

KV.EVA


» 2 hafa sagt sína skoðun

20.08.2006 21:47:40 / evahannesdottir

HÆ!

Hæ hæ stelpur minar!! Ætlaði nú bara að leyfa ykkur að kíkja á þennan link...þetta er svoo fyndið og þetta er alveg nokkrar mínútur þannig að það er ekkert vitlaust að poppa nuna og kíkja svo á þetta....segið mer svo hvað ykkur finnst!!

http://fadedyouth.blogspot.com/2006/08/howard-sterns-small-penis-contest.html

þær sem hafa eitthvað að kvarta yfir ættu kannski að hugsa sig betur um! ;)

Bless í bili beibís


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3